Viðskiptasendinefndir 2007
29. nóv.- 3. des. Bretland
Í tilefni af íslenskri menningarhátíð í Liverpool sem var haldin þessa daga. Efni hátíðarinnar og dagskrá má sjá á vefsíðunni http://www.ice07.org/.
Meira
22.-29. nóvember. Viðskiptasendinefnd til Indlands
Útflutningsráð í samvinnu við sendiráð Íslands í Nýju-Delí skipulagði viðskiptasendinefnd til Indlands 22.-29. nóvember. Fjármálaráðherra, Árni Mathiesen, leddi sendinefndina en farið var til Nýju-Delí og Mumbai.
Meira
29. okt.-2. nóv. Ferð til Jórdaníu og Ísrael
Ferðin hófst í Jórdaníu og var sú heimsókn skipulögð af ræðismanni Íslands í Jórdaníu. 30. október var þátttaka í sýningunni Israel Gateway og fyrirtækjaheimsóknir næstu dag. Þann 1. nóvember fór svo fram ráðstefnan The Prime Minister's Conference for Export and International Cooperation. Sjá frétt.
29.-30. október, Norrænir viðskiptadagar í Zagreb, Króatíu
Norræna viðskiptaráðið í Króatíu stendur fyrir norrænum viðskiptadögum í Zagreb í lok október, en þetta er fjórða árið í röð sem slíkir dagar eru haldnir. Tilgangurinn er að kynna starfsemi norrænna fyrirtækja í landinu og koma á tengslum viðskiptamanna frá Norðurlöndunum og heimamanna.
Meira
19.-21. september, Viðskiptasendinefnd til Rúmeníu.
Forseti Íslands fór í opinbera heimsókn til Rúmeníu dagana 19. til 21. september nk. Af því tilefni hefur var skipulögð viðskiptasendinefnd til að koma á og efla tengsl við fyrirtæki í landinu. Boðið var upp á skipulag viðskiptafunda miðvikudaginn 19. september en þann 20. var viðskiptaþing þar sem Ísland og íslensk fyrirtæki verða kynnt. Fjölbreyttur hópur fyrirtækja tók þátt í ferðinni og var almenn ánægja. Nánari upplýsingar og fróðleik er að finna hér
4.-6. júlí 2007, Viðskiptasendinefnd með séráherslu á orkumál til Moskvu
Borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiddi rúmlega 30 manna viðskiptasendinefnd í heimsókn sinni til Moskvuborgar. Sérstök áhersla var á orkumál og var haldið fjölmennt þing um nýtingu endurnýjanlegrar orku og viðskipti því tengd fimmtudaginn 5. júlí. Einnig voru heimsótt íslensk fyrirtæki með starfsemi í Moskvu: Glitnir, Actavis og Norvik Bank. Vefsíða um ferðina með kynningum, upplýsingum og myndum er í vinnslu, en hér má skoða frétt um ferðina.
13.-17. maí 2007, Fræðsluferð til Kasakstan
Tíu manna sendinefnd fór til Kasakstan og var markmið ferðarinnar að afla þekkingar um land, þjóð og viðskiptamöguleika. Áhersla var lögð á að fá kynningu á viðskiptatækifærum, fjárfestingartækifærum og viðskiptaumhverfi landsins. Verkefnið var unnið í samstarfi við sendiráð Íslands í Moskvu. Vefsíða um ferðina með kynningum, upplýsingum og myndum er í vinnslu.
24.-27. apríl 2007, Viðskiptasendinefnd ferðaþjónustufyrirtækja til N-Englands
10 ferðaþjónustufyrirtæki tóku þátt í fjögurra daga viðskiptasendinefnd til N-Englands í lok apríl. Flogið var til Glasgow og þaðan farið með rútu til Manchester með viðkomu í Northumberland, York og Leeds. Fyrirtækin fengu fyrst fræðslu um viðhorf heimamanna og eins í framsetningu efnis. Síðan voru viðskiptafundir í Leeds og Manchester. Tókust þeir vel og eru fyrirtækin að vinna úr þeim tengingum sem þar sköpuðust. Ferðamálastofa var einnig með kynningu á Íslandi og mæltist hún vel fyrir hjá breskum fyrirtækjum. Vefsíða um ferðina með kynningum, upplýsingum og myndum er í vinnslu, en hér má skoða frétt um ferðina.
24. febrúar-3. mars 2007, Viðskiptasendinefnd til S-Afríku
Fyrsta viðskiptasendinefnd ársins var til S-Afríku undir forystu utanríksráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur. Eftirtalin fyrirtæki tóku þátt í ferðinni: Hyrna, Icelandair, Icexpress, Landsbankinn, Landsvirkjun, LS Retail, Marel, OpenHand og Trex. Vefsvæði með upplýsingum um dagskrá, fyrirtæki og myndum úr ferðinni hefur verið sett upp..
Nánari upplýsingar:
Þorleifur Þór Jónsson, forstöðumaður
thorleifur@utflutningsrad.is






