Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Íslandsstofu
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1994 á Nýsköpunarþingi. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu og rannsókna og þekkingaröflunar.
Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Íslandsstofu er haldið árlega og umfjöllunarefni hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefni Nýsköpunarþinganna hefur því ávallt verið valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar.
|
|








