Útrásarmöguleikar til Kína
23.6. 2008
Fyrirtæki staðsett í Hollandi, sem leggur áherslu á að koma á viðskiptum á milli evrópskra og kínverskra fyrirtækja og/eða virkja tengsl á milli opinberra stofnanna vill komast í samband við íslensk fyrirtæki.
Starfsviði fyrirtækisins má skipta niður í eftirfarandi einingar:
* Innflutningsþjónusta:* Aðstoða fyrirtæki við leit á birgjum,
samskipti, gæðaúttekt, samningagerð o.fl. í Kína
* Ráðstefnur & hátíðarhöld:* Í samstarfi við borgaryfirvöld í Haag í
Hollandi, er unnið að viðskiptaráðstefnum og hátíðarhöldum tengd Kínaári
* *Fjárfestingar:* unnið að uppbyggingu á iðngörðum í Kína ásamt
rekstrarþjónustu tengdri skrifstofuhaldi, skráning, samskipti við
innlenda þjónustuaðila, aðstoð við að útvega vinnuafl o.fl.
* *Viðskiptaáætlanagerð og FDI:* Gerð viðskiptaáætlana fyrir
fyrirtæki sem vilja eiga greiðan aðgang að lánum og styrkjum
frá yfirvöldum í Haag og aðstoð við uppsetningu fyrirtækja í
Hollandi.
Með samvinnu borgaryfirvalda í Kína (Nantong, Dongtai) og hollenskra
aðila, er boðið upp á aðstoð við fyrirtæki sem hafa hug á að
hefja starfsemi í Kína. Fyrirtækið hefur tök á að bjóða upp aðgang að húsnæði á
mjög hagstæðum kjörum ásamt þjónustumöguleikum sem heyra undir
"Fjárfestingar" og "Innflutningsþjónusta".
Í Nantong er í boði húsnæði sem hægt er að leigja
(leigukostnaður er enginn á fyrsta ári), og bæði í Dongtai og í Nantong
er í boði land fyrir byggingastarfsemi á mjög hagstæðu verði, í
kjölfarið fylgja síðan ýmis skattafríðindi og þjónusta.
Frekari upplýsingar veitir Jakob Hans Kristjánsson
(jakob@ssgworld.com / GSM: +31 (0) 63 818 26 05), og/eða athugið
eftirfarandi vefsíður:
www.ssgworld.com
www.cesinholland.org
www.go-eip.nl
Company: The Sun-Sun Group (SSG)
Postbus 17111
2502 CC The Hague
The Netherlands
Telephone: +31 (0)70 444 57 31
Fax: +31 (0)70 444 57 32
Website: www.ssgworld.com






