Aðstoð við íslensk fyrirtæki á Ítalíu
Ég vil kynna mig og áhuga minn á því að aðstoða íslensk fyrirtæki við að komast í samstarf við fyrirtæki á Ítalíu. Þessi áhuga kviknaði í kjölfar fyrirspurna sem ég hef fengið frá íslenskum fyrirtækjum í gegnum tíðina. Þannig hef ég t.d. komið á tengslum milli Enex og Napoli borgar við skoðun á möguleika á framkvæmdum við hitaveitu. Í gegnum árin hef ég verið í góðu sambandi við ræðismenn Íslands, Olgu Clausen í Milano og Giuseppe Storaci í Torino og við Sigurð Þorsteinsson hjá Desing Group Italia.
Ég stundaði nám í verkfræði í Álaborg og Berlín og hef starfað við bílaiðnaðinn í Torino sl. 17 ár og er nú verkefnastjóri hjá Fiat.
Auk þess að taka að mér að koma á tengslum við aðila á Ítalíu get ég tekið að mér skipulagningu og undirbúning einstakra verkefna.
Sjá nánari upplýsingar í ferilskrá.
Bestu kveðjur
Daniel Helgason
dhelgason@europe.com






