Hlutverk Íslandsstofu er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Jafnframt veitir Íslandsstofa fyrirtækjum faglega aðstoð við sölu á vörum, þjónustu og þekkingu erlendis og styður við kynningu á íslenskri menningu ytra.
Íslandsstofa er aðili að Enterprise Europe Network, sem er stuðningsnet ESB fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Verkefni sjávarútvegsins um upprunamerki og ábyrgar fiskveiðar (Iceland Responsible Fisheries) nýtur þjónustu Íslandsstofu um kynningu og markaðssetningu erlendis.
Skrifstofa ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, er hjá Íslandsstofu en þeir aðilar sem einnig standa að ÚTÓN eru Samtónn og ráðuneyti iðnaðar, mennta- og menningarmála og utanríkismála.






