Ný viðskiptatækifæri í Kanada
5. júní 2009
Fjölmennt var á vel heppnuðum kynningarfundi um Kanada og þau sóknartækifæri sem opnast í kjölfarið á undirritun Fríverslunarsamnings á milli EFTA ríkjanna og Kanada en fundurinn var haldinn 3. júní sl.
Samningurinn er hagstæður fyrir Ísland þar sem samkomulag varð um niðurfellingu tolla á öllum iðnaðarvörum og ýmsum öðrum vörum sem Ísland framleiðir og flytur út. Sem dæmi má nefna sjávarafurðir, hross, lambakjöt, skyr, útivistarfatnað, fiskikör og aðrar vörur úr plasti, vogir, sem og vélar og tæki. Ísland veitir Kanada í staðinn tollfrjálsan aðgang fyrir iðnaðarvörur og sambærilegan aðgang fyrir landbúnaðarvörur sem Ísland hefur veitt Evrópusambandinu. Að frumkvæði Íslands er nýtt ákvæði í þessum Fríverslunarsamningi sem fjallar um og liðkar fyrir tímabundnum aðgangi og dvöl fyrir lykilstarfsmenn fyrirtækja og starfsmenn við þjónustu í tengslum við vöruviðskipti.
Dagskrá fundarins:
Setning fundar
Sigríður Anna Þórðardóttir, sendiherra Íslands í Kanada sem jafnframt var fundarstjóri
Sigríður Anna Þórðardóttir, sendiherra Íslands í Kanada sem jafnframt var fundarstjóri
Sýn Kanada á tvíhliða viðskipti á milli Kanada og Íslands
Jenný Stefanía Jensdóttir, fjármálastjóri Jysk Linen'n Furniture Inc. sem eru í dag með 38 verslanir víðsvegar um Kanada - Glærukynning
Jenný Stefanía Jensdóttir, fjármálastjóri Jysk Linen'n Furniture Inc. sem eru í dag með 38 verslanir víðsvegar um Kanada - Glærukynning
Þjónusta við innflytjendur vöru til Kanada
Anna Blauveldt, sendiherra Kanada á Íslandi
Anna Blauveldt, sendiherra Kanada á Íslandi
Flutningur á vörum til og frá Kanada
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo- Glærukynning
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips- Glærukynning
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo- Glærukynning
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips- Glærukynning
Líkkistur, sjávarfang og önnur tækifæri í Kanada
Hlynur Guðjónsson, konsúll og viðskiptafulltrúi Íslands í Norður Ameríku- Glærukynning
Hlynur Guðjónsson, konsúll og viðskiptafulltrúi Íslands í Norður Ameríku- Glærukynning
Næstu skref:
Hermann Ottósson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði Íslands
Nánari upplýsingar veitir Andri Marteinsson, andri@utflutningsrad.is
Hermann Ottósson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði Íslands
Nánari upplýsingar veitir Andri Marteinsson, andri@utflutningsrad.is






