Viðburðir
- 06.06.2012 Innkaup stofnana..
- 14.08.2012 Nor-Fishing 2012..
- 17.08.2012 Birdfair 2012
- 18.09.2012 Top Resa í Frakk..
- 02.10.2012 Vestnorden í Hör..
- Fleiri viðburðir
Skráðu þig á póstlistann
Góðar undirtektir á fundi um samningatækni í ólíkum menninagarheimum
Síðastliðinn fimmtudag stóð Íslandsstofa fyrir fræðslufundi þar sem Vlad Vaiman, prófessor í alþjóðlegri stjórnun, lýsti árangursríkri tækni við samninga í ólíkum menningarheimum.

Á fundinum var meðal annars leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
- Af hverju er mikilvægt að skilja sinn eigin menningarheim?
- Hvernig tryggjum við árangursrík samskipti milli menningarheima?
- Hvernig forðumst við vandamál í samskiptum og samningum milli aðila frá ólíkum menningarheimum?
Vlad Vaiman fékk góðar undirtektir á fundinum enda um mjög mikilvægt umræðuefni að ræða fyrir alla þá sem huga að eða eru í útflutningi.

Vlad Vaiman er prófessor í alþjóðlegri stjórnun og forstöðumaður framhaldsnáms í viðskiptafræði við Háskóla Reykjavíkur. Hann er með doktorsgráðu í fjölmenningarstjórnun frá Háskólanum í St. Gallen í Sviss. Hann hefur starfað sem ráðgjafi hjá fyrirtækjum víðsvegar um heiminn, þar á meðal í Bandaríkjunum, Kanada, Sviss, Rússland og Austurríki. Vlad Vaiman er höfundur tveggja bóka og fjölda fræðigreina um mannauðsmál og stjórnun.
Nánari upplýsingar veita:
Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og
Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is
Til baka
Útflutningsskrefin
-
Markaðsupplýsingar
Kortlagning markaða, gagnabankar, gátlistar, upplýsingar um tolla, regluverk og tæknileg atriði
-
Undirbúningur
Verkefni og námskeið fyrir fyrirtæki og starfsgreinar, tengslamyndun og upplýsingar um handleiðslu
-
Aðstoð á markaði
Þjónustu- og ráðgjafanet á mörkuðum, val á samstarfaðilum, sýningar og sendinefndir
