Fjölmenni á vinnufundi Íslandsstofu í St. Pétursborg
Annað árið í röð gekk Íslandsstofa til samvinnu við Grænlendinga og Færeyinga þar sem löndin þrjú stóðu saman að vinnufundi ferðaþjónustuaðila.
Fundurinn, sem fór fram sl. þriðjudag í St. Pétursborg heppnaðist mjög vel, en að þessu sinni tóku 16 íslensk ferðaþjónustufyrirtæki þátt, auk fyrirtækja frá Grænlandi og Færeyjum.
Heimamenn fjölmenntu á fundinn og komu tæplega 150 fulltrúar frá hátt í hundrað fyrirtækjum til að kynna sér það sem í boði er fyrir rússneska ferðamenn, ásamt því að hlýða á kynningar frá löndunum þremur. Fulltrúar Íslandsstofu og Sendiráðs Íslands í Moskvu voru á staðnum bæði til að kynna Ísland almennt og eins til að greiða úr spurningum.
Rússland er mjög vaxandi markaður og fjölgaði ferðamönnum þaðan um tæp 48% milli ára frá 2010 til 2011. Virðist því sem kynningarfundir af þessu tagi séu að skila góðum árangri í markaðssetningu landsins.
Hér að neðan má sjá myndir frá fundinum.








