Ráðstefna IGI í Bláa lóninu
8. september 2010
IGI (Icelandic Gaming Industry) eru samtök átta íslenskra tölvuleikjafyrirtækja. Samtökin voru sett á fót í maí 2009 en voru formlega stofnuð sem samtök innan Samtaka iðnaðarins 24. september sama ár.
Til að fagna fyrsta starfsári sínu halda samtökin ráðstefnu í
Bláa lóninu 24. september nk.
Ráðstefnan ber heitið „Afmælisráðstefna IGI: Framtíðin er björt...“. Titillinn er tilvísun í þá miklu bjartsýni sem ríkir innan IGI um þessar mundir. Fyrirtækin átta eru samtals með ríflega 400 starfsmenn á sínum snærum og nær 800 séu starfsmenn erlendis teknir með í reikninginn. Á ráðstefnunni verður einblínt á þau tækifæri sem blasa við tölvuleikjaframleiðendum sem hluta af hinum stafræna geira skemmtanaiðnarins. Fyrirlesarar munu beina sjónum að framtíð tölvuleikjaframleiðslu hér á landi, tækifærum á alþjóðlegum markaði og hvernig þau verði best nýtt. Keppst verður við að svara spurningunni um hvernig tölvuleikjaiðnaður á Íslandi geti sem best verið hluti af alþjóðlega tölvuleikjaiðnaðinum í framtíðinni.
Fyrirlestrar verða kynntir þegar nær dregur en drög að dagskrá má finna á Facebook síðu ráðstefnunnar. Nánari upplýsingar má einnig nálgast hjá Erlu Bjarneyju Árnadóttur í síma 898 9363.
Lykilfyrirlesarar:
Pablos Holman – Víðfrægur „hakkari“, sérfræðingur í tölvuöryggi og alhliða tæknifrumkvöðull. Pablos er eftirsóttur fyrirlesari víða um heim vegna áhugaverðrar sýnar á smíði, og niðurrif, nýrrar tækni.
Jason Della Rocca – Ráðgjafi hjá Perimeter Partners og framkvæmdastjóri hjá Alþjóðasamtökum leikjahönnuða (IGDA).
Aðrir fyrirlesarar:
Andie Nordgren – CCP
Peter Warman – Newzoo
Ville Miettinen – Microtasks
Torfi Frans Ólafsson – CCP
Jonathan Osborne – Gogogic
Deepa Iyengar – MindGames
Þorsteinn Högni Gunnarsson – CCP
Jónas Björgvin Antonsson – Gogogic
Nánari upplýsingar veita Erla Bjarney Árnadóttir í síma 898 9363 og Björn H. Reynisson hjá Íslandsstofu í síma 824 4376.
Samstarfsaðilar ráðstefnunnar eru: