Vel sóttur morgunverðarfundur
Morgunverðarfundur sem bar yfirskriftina „Bandaríkin - markaðsaðgangur og dreifileiðir“ var haldinn miðvikudaginn 8. september.
Á fundinum kynnti Hlynur Guðjónsson, ræðismaður og viðskiptafulltrúi í Norður-Ameríku aðferðir við að fara inn á markaðinn með notkun mismunandi dreifileiða og hvað þyrfti helst að hafa í huga þegar samið væri við slíka aðila.
Hann tók dæmi um nokkur íslensk fyrirtæki sem farið hafa á inn á þennan markað og Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi The Designers Market, lýsti fyrstu skrefum fyrirtækisins inn á þennan markað.
Mikill fjöldi fólks var mættur til að fræðast nánar um einn stærsta neytendamarkað heims og var gerður góður rómur að því sem framsögumenn höfðu fram að færa.
Hægt er að nálgast kynningu Hlyns hér og kynningu Ingibjargar hér.










