Sýningin The Scandinavian Show verður haldin í október
Sýningin the Scandinavia Show verður haldin í fyrsta skipti í London þann 9.-10. október nk. Scan Magazine stendur fyrir skipulagningunni en Visit Denmark er aðal stuðningsaðilinn og verða öll Norðurlöndin þátttakendur í sýningunni.
Visit Iceland verður með aðstöðu í „Travel“ hlutanum með 12 m2 bás. Hönnun á básnum er ekki lokið og kemur til með að markast eitthvað af því hvaða ferðaþjónustuaðilar taka þátt. Sýningin er neytandasýning og markhópurinn er svokallað ABC1 sem er fólk með góðar tekjur í góðum stöðum.
Þátttökugjald fyrir hvert ferðaþjónustufyrirtæki er kr. 190.000. Fjöldi fyrirtækja verður takmarkaður enda básinn ekki stór. Vinsamlega tilkynnið um þátttöku fyrir 10. september.
· Skráningareyðublað (pdf)
Nánari upplýsingar:
Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, siggagroa@islandsstofa.is, sími 511 4000.
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á eftirfarandi vefsíðum:
www.telegraph.co.uk/sponsored/travel/scandinavia-show/
www.scandinaviashow.co.uk/






