Fuglar á Íslandi laða að sýningargesti á Englandi
Níu íslensk fyrirtæki er starfa í ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara taka þátt í sýningunni Birdfair sem fram fer í Rutland á Englandi um helgina.
Birdfair er stærsta fuglaskoðunarsýning Evrópu og þekkt sem nokkurs konar Glastonbury-hátíð fuglaskoðara. „Sýningin er fjölsótt og afar mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að taka þátt í henni,“ segir Björn H. Reynisson hjá Íslandsstofu sem hafði veg og vanda af undirbúningi, í samvinnu við Samtök um fuglatengda ferðaþjónustu. „Sýningin byrjar mjög vel og er búist við enn meiri aðsókn en á síðasta ári en þá mættu ríflega 20 þúsund manns.“
Íslensku fyrirtækin á Birdfair eru Gavia Travel, Vesturferðir, Fuglar á Suð-Austurlandi, Breiðafjarðarfléttan, Fuglar á Suðurlandi, Emmson, Sveitasetrið á Hofstöðum, Fuglar á Norð-Austurlandi og Hótel Brimnes. Í hópi þátttakenda er Rósa María Vésteinsdóttir frá Sveitasetrinu á Hofstöðum og er hún ánægð með sýninguna: „Birdfair býður upp á frábært tækifæri til að hitta náttúruunnendur, með möguleika á að byggja upp sambönd við hugsanlega viðskiptavini.“
Íslandsstofa, áður Útflutningsráð, hefur unnið að uppbyggingu á ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara síðustu misserin, m.a. með þátttöku í Birdfair annað árið í röð. Á sýningunni er að finna allt það nýjasta sem tengist fuglaskoðun og fuglarannsóknum. Birdfair hefur verið haldin árlega frá 1989 en líkt og á Glastonbury-hátíðinni rennur allur ágóði til góðgerðarmála.












