Noregskonungur heimsækir íslenska þjóðarbásinn á Nor-Fishing
Haraldur Noregskonungur heimsótti íslenska sýningarsvæðið á Nor-Fishing sem nú stendur yfir í Þrándheimi og spjallaði við sýnendur, eftir að hafa sett sýninguna við hátíðlega athöfn.
Þar var rætt um íslensku fyrirtækin á básnum, sem og nýafstaðna veiðiferð konungs til Íslands. „Það var okkur mikill heiður að íslenski básinn varð fyrir valinu, einn af fáum sem konungurinn heimsótti“, segir Berglind Steindórsdóttir hjá Íslandsstofu.
Þetta er í 50. sinn sem Nor-Fishing fer fram en hún er haldin annað hvert ár, á móti fiskeldissýningunni Aqua-Nor. Íslandsstofa skipulagði íslenskan þjóðarbás þar sem sjö fyrirtæki eru saman komin að kynna vörur sína og þjónustu; Hampiðjan, Neptúnus, Safír Shipbrokers, Naust Marine, Oddi, Egill og HBG Service. Nokkur önnur íslensk fyrirtæki sýna einnig á sýningunni og þá flest með umboðsaðilum sínum. Um 400 sýnendur eru á sýningunni frá 24 löndum og er búist við um 15.000 gestum.









