Íslensk hönnun vekur athygli
Sex íslenskir hönnuðir tóku þátt í fatahönnunarsýningunni CPH Vision í Öksnehallen á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Flestir þessara hönnuða voru að sýna þar í fyrsta sinn og jafnvel að fara á fyrsta sinn á sýningu erlendis.
Íslandsstofa skipulagði þátttöku hönnuðanna í sýningunni sem stóð yfir dagana 12.-14. ágúst, þar sem þeir sýndu bæði skó- og fatahönnun. Að sögn Berglindar Steindórsdóttur hjá Íslandsstofu fengu hönnuðirnir strax á fyrsta degi mjög góð viðbrögð og hafa gestir verið að tjá sig um ágæti hönnunarinnar. Þá hafi pantanir verið teknar niður og einnig hafa sumir hönnuðurnir komist í kynni við dreifingaraðila og eða umboðsaðila til að vinna með í framtíðinni. Það er mál manna að íslensku hönnuðirnir skeri sig úr og séu með nokkuð öðruvísi hönnun en aðrir þátttakendur á sýningunni.
Íslensku hönnuðurnir eru Sonja Bent, Royal Extreme, E-Label, Kron by KronKron, Birna Trading og Kurl Project.






