Öflug Íslandskynning á EXPO í Shanghai í september
Dagur Íslands á heimssýningunni EXPO í Shanghai verður laugardaginn 11. september nk. og mun forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þá heimsækja íslenska sýningarsvæðið.
Verður forseti boðinn velkominn af háttsettum fulltrúum kínverskra stjórnvalda og gefst þar gott tækifæri til að kynna það sem Ísland hefur fram að færa á sýningunni. Opinber heimsókn forseta Íslands til Shanghai er hluti af viðamikilli Íslands dagskrá sem hefst fimmtudaginn 9. september með ráðstefnu um orkumál. Kínversk stjórnvöld hafa mikinn áhuga á að nýta jarðvarma og hafa m.a. tekið upp samstarf þar að lútandi við Orkuveitu Reykjavíkur í Xian Yang. Munu fulltrúar helstu íslenskra fyrirtækja í orkumálum kynna starfsemi sína fyrir heimamönnum á ráðstefnunni.
Föstudaginn 10. september verða opnaðar sýningar í Nordic Lighthouse sem er norræn menningarmiðstöð sem sett hefur verið sérstaklega upp vegna Expo. Eru það Íslensk hönnun - farandsýning Hönnunarmiðstöðvar (margir hönnuðir, iðnhönnuðir, arkitektar og landslagsarkitektar); Fatahönnunarsýning - Steinunn Sigurðardóttir í tengslum við markaðssetningu í Kína; Ljósmyndir af bráðnun jökla - RAX í tilefni af sölu bókar á kínversku; Myndlistarinnsetning - Guðrún Kristjánsdóttir. Í Nordic lighthouse er einnig Össur stoðtæki með sýningu (Lifestyle Exhibition) og Iceland Glacial er opinbert vatn hússins allan tímann.
Íslandsstofa og ræðisskrifstofan í Shanghai munu aðstoða fyrirtæki við skipulagningu viðskiptafunda sem geta átt sér stað þessa daga. Mikil tækifæri gefast því til að komast í tengsl við Kínversk fyrirtæki og jafnframt efla þau sem fyrir eru.
Það er því ljóst að Bing Dao – Ís-eyjan verður í sviðsljósinu í stórborginni Shanghai í september.






