Fjárfestingarþing við Svartahafið
Dagana 16.-19. september er haldið fjárfestingarþingið Forum Kuban í Sochi við Svartahafið í Rússlandi www.forumkuban.com.
Íslandsstofa tekur þátt í þinginu í samvinnu við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Moskvu og er þátttaka er opin fyrir fyrirtæki frá Íslandi. Þá býðst fyrirtækjum sem ekki verða með fulltrúa á staðnum að senda kynningarefni og stefnt verður að koma á framfæri beint við þá sem eru að vinna í orkumálum.
Krasnodar hérað er eitt af þeim svæðum í Rússlandi þar sem virkjanlegur jarðhiti er til staðar. Miklar framkvæmdir eru á svæðinu vegna undirbúnings Ólympíuleikanna 2014 og væri því hægt að koma almennum verkfræðiupplýsingum á framfæri. Til stendur að hafa ljósmyndasýningu frá Íslandi á fundarsvæðinu.
Sjá nánari upplýsingar um þingið á vefsíðunni www.forumkuban.com/programme.php.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.






