Íslandsstofa
Alþingi samþykkti í lok aprílmánaðar lög um Íslandsstofu og hefur utanríkisráðherra boðað til stofnfundar þriðjudaginn 29. júní.
Með tilkomu Íslandsstofu verður öll kynning á viðskiptalegum hagsmunum Íslands komin undir einn hatt, en í lögunum segir að markmið þeirra sé að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins.
Í sinni einföldustu mynd má segja að á vettvangi Íslandsstofu sameinist öll núverandi starfsemi Útflutningsráðs og erlent markaðsstarf Ferðamálastofu. Drifkraftur þessara breytinga er hugmyndir, sem ekki eru alveg nýjar af nálinni, um nánara samstarf opinberra aðila og atvinnulífsins um markvissari nýtingu fjármuna, aukna samhæfingu og öflugri þjónustu fyrir alla þá aðila sem skapa erlendan gjaldeyri fyrir þjóðarbúið. Íslandsstofa verður þó meira en einföld samlagning þeirrar starfsemi sem þegar er fyrir hendi, því henni er ætlað víðtækara starf sem snýr m.a. að því að styrkja ímynd og orðspor Íslands og styðja við kynningu á íslenskri menningu erlendis.
Gert er ráð fyrir mjög breiðri aðkomu hagsmunaaðila að stefnumörkun og stjórn Íslandsstofu. Stjórnina sjálfa skipa sjö menn sem valdir eru til þriggja ára í senn. Utanríkisráðherra skipar fjóra stjórnarmenn eftir tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn eftir tilnefningu iðnaðarráðherra, einn eftir tilnefningu mennta- og menningarmálaráðherra og einn án tilnefningar. Stjórnin skal samkvæmt lögunum skipa sérstakar verkefnastjórnir til að móta áherslur einstakra málaflokka, t.a.m. á sviði ferðaþjónustu, matvælagreina, umhverfismála, menningarmála og fjárfestinga erlendra aðila hér á landi. Þá skipar stjórnin ráðgjafaráð er skal vera henni til ráðuneytis um stefnumörkun og áherslur í störfum stofunnar og skulu málsvarar mikilvægustu hagsmuna á starfssviði stofunnar eiga sæti í ráðgjafaráðinu.
Efling utanríkisviðskipta og aukin gjaldeyrisöflun hér á landi ýtir undir hagvöxt og velmegun. Mikilvægt er að hvetja erlenda aðila til að nýta sér mannauð og staðarkosti lands og þjóðar með fjárfestingum og starfsemi á Íslandi. Aukinn útflutningur og erlendar fjárfestingar hér á landi skapa þannig nauðsynlegan vöxt gjaldeyristekna fyrir þjóðarbúið og eru veigamikill þáttur í aukinni framleiðni, atvinnu og almennri velferð. Með stofnun Íslandsstofu verður útflutningsþjónustu, landkynningar- og markaðsstarfi ferðamála og fjárfestinga og ímyndar- og orðsporsmálum Íslands sinnt á samræmdan hátt á einum stað. Slíkt mun skila auknum árangri og rekstrarlegu hagræði. Því ber sérstaklega að fagna tilkomu Íslandsstofu.
Stjórn Íslandsstofu skipa:
Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri Hótels Rangár, formaður stjórnar
Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda
Einar Karl Haraldsson ráðgjafi, Innform
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður Bandalags íslenskra listamanna
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel á Íslandi
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentor






