Ísland í heiðurssæti
23. júní 2010
Matvælasýning í Sviss 2011
Útflutningsráð kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í hótel- og veitingahúsasýningunni IGEHO sem haldin verður í Basel, Sviss, 19.–23. nóvember 2011.
Ísland mun þar verða í heiðurssæti og sett verður upp stór Íslandseyja á besta stað á sýningarsvæðinu þar sem matvæli, s.s. kjöt, fiskur,
mjólkur- og drykkjarvörur verða kynnt, auk ferðaþjónustu.
Sýningin er haldin annað hvert ár og mæta að jafnaði um 100 þúsund gestir sem flestir eru hótel- og veitingahúsaeigendur frá Sviss og Þýskalandi.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku í IGEHO 2011eru hvattir til að hafa samband sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Steindórsdóttir, berglind@utflutningsrad.is, s. 511 4000.
Upplýsingar um sýninguna má finna á www.igeho.ch.







