China Fisheries & Seafood Expo, Dalían 2.–4.nóvember 2010
Undirbúningur er hafinn fyrir sjávarútvegssýninguna China Fisheries & Seafood Expo sem verður haldin 2.–4. nóvember í Dalían. Þetta er í 15. sinn sem sýningin er haldin og er ein stærsta sýning sinnar tegundar í Asíu og fer stækkandi milli ára. Sýningin er m.a. ætluð fyrirtækjum í sjávarafurðum, tækni- og tækjabúnaði og ýmiskonar þjónustu við sjávarútveginn. Einnig er hluti sýningarinnar tileinkað fiskeldi. Sýnendur koma frá um 30 löndum og gestir sem eru yfir 15.000 koma frá um 50 löndum. Eins og fyrr segir fer sýningin í ár fram í Dalían sem er ein af framsæknustu borgum í Kína og ein af tveimur stærstu borgunum í innflutningi á sjávarafurðum. Í Dalían og nærliggjandi borgum eru yfir 500 fiskvinnslur sem eru ISO og HACCP vottaðar.
Vefsíða sýningarinnar er: www.chinaseafoodexpo.com
Áhugasömum fyrirtækjum um þátttöku er bent á að hafa samband við Berglindi Steindórsdóttur berglind@utflutningsrad.is eða Aðalstein Hauk Sverrisson adalsteinn@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.






