Bing Dao vekur athygli í Sjanghai
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, leiðir viðskiptasendinefnd fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nú er stödd í Kína í tengslum við heimssýninguna í Sjanghai, EXPO 2010.
Ráðherra hefur í ræðum sínum m.a. lagt áherslu á styrk Íslands á sviði ferðamála og jarðhita og nefnt sem dæmi hvernig lönd af ólíkum stærðum geti unnið saman að þróun betri borga og betra lífs, sem einmitt eru einkunnarorð EXPO 2010. Allt hefur gengið að óskum í ferðinni, að sögn Þorleifs Þórs Jónssonar hjá Útflutningsráði og greinilegt að Ísland - Bing Dao - vekur athygli heimamanna.
Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, var haldinn blaðamannafundur og kynning á Íslandi í norrænu menningarmiðstöðinni í Sjanghai, Nordic Lighthouse. Að því loknu áttu vel á annan tug fyrirtækja frá Sjanghai árangursríka fundi með íslenskum ferðaþjónustuaðilum. Fulltrúum kínversku fyrirtækjanna var þvínæst boðið að heimsækja íslenska sýningarsvæðið á EXPO 2010. Hlýddi hópurinn á hljómleika með KK, sem heillaði Kínverja upp úr skónum, og hélt síðan í íslenska skálann þar sem Inspired by Iceland-myndbandið, auk hinnar stórfenglegu landkynningar sem þar er sýnd í fjórvídd, vakti mikla hrifningu.
Eftirtaldir taka þátt í íslensku sendinefndinni: Bláa lónið, Elding hvalaskoðun, Icelandair, Allrahanda, Iceland Travel, Fjallamenn, Kynnisferðir, Reykjavíkurhótel, Yu Fan-ferðir, Reykjavíkurborg, Ferðamálastofa, Samtök ferðaþjónustunnar, iðnaðarráðuneytið, utanríkisráðuneytið og Útflutningsráð Íslands.
Myndir frá blaðamannafundi og viðskiptafundum










