Samtök fyrirtækja í umhverfistækni stofnuð á Íslandi
Undanfarið ár hafa Útflutningsráð Íslands og Samtök iðnaðarins tekið þátt í norrænu samstarfsverkefni fyrirtækja á sviði umhverfistækni sem ber heitið Nordic Cleantech Alliance (NCA). Samhliða því verkefni fóru SI ásamt fleiri aðilum í stefnumótun á þessu sviði. Þar kom m.a. fram áhugi á að auka samstarf fyrirtækja sem eru að þróa nýja umhverfistækni.
Samtök fyrirtækja í grænni tækni, Clean Tech Iceland, voru svo stofnuð 1. júní sl. Að stofnuninni stóðu Samtök iðnaðarins og fyrirtæki sem vinna að þróun og markaðssetningu á grænni tækni og munu samtökin starfa sem starfsgreinahópur innan SI.
Meðal þess sem samtökin munu vinna að er að styrkja netverk fyrirtækjanna, auka samstarf og deila þekkingu og reynslu. Þess má geta að þrír af fimm í stjórn hinna nýju samtaka eru þátttakendur í norræna verkefninu.
Íslensku fyrirtækin sem taka þátt í NCA verkefninu eru níu talsins, þar sem þau kynna vörur sínar og þjónustu undir sameiginlegu vörumerki, Nordic Cleantech Alliance.
„Það er mikill styrkur að stofnun samtakanna,“ segir Andri Marteinsson hjá Útflutningsráði, „því fyrirtækin sem starfa í þessum geira hafa sýnt mikinn áhuga á samstarfsvettvangi. Við kynntum norræna samstarfið á stefnumótunarfundinum síðastliðið haust og teljum mikla möguleika felast í samstarfi af þessu tagi.“
Að sögn Andra eru spennandi tímar framundan og möguleikarnir meiri þegar starfað er saman á þennan hátt. Hann tekur þátt í vinnufundi með fulltrúum samstarfslandanna þann 10. júní nk. þar sem næstu skref í verkefninu verða rædd.
Þá er í undirbúningi að efna til vinnustofu í tengslum við sýninguna World Climate Solutions sem haldin verður í Kaupmannahöfn, 29.-30. september.






