Stuðningsumhverfi nýsköpunar
Um 200 manns sóttu vel heppnaðan kynningarfund um stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi sem haldinn var þann 26. maí sl. í tilefni af evrópsku fyrirtækjavikunni, SME Week 2010.
Á fundinum flutti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ávarp og Sigurður Björnsson, sviðsstjóri hjá Rannís, kynnti tvenn lög sem ætlað er að bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja, efla nýsköpun, rannsóknir og þróunarstarf. Að því loknu miðluðu fulltrúar eftirtalinna fyrirtækja af reynslu sinni: Bláa lónið, CLARA, Gogogic, Knitting Iceland, Marorka, Nox Medical, Remake Electric, StudioBility og Transmit.
Í tengslum við fundinn var safnað upplýsingum um þjónustu sextán aðila með það fyrir augum að geta gefið sem best yfirlit yfir það sem stuðningsumhverfið hefur að bjóða fyrirtækjum og frumkvöðlum.
Upptökur frá fundinum er að finna á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.
Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir, erna@utflutningsrad.is.






