Ráðgjöf um Ítalíumarkað
5. maí 2010
Ítalía er vaxandi markaður og felur í sér ýmsa möguleika fyrir Íslendinga. Antony Oldani býður íslenskum fyrirtækjum ráðgjöf um sókn á ítalskan markað en hann hefur síðustu misseri átt farsælt samstarf við Fjárfestingarstofuna og kynnt fyrir Ítölum fjárfestingartækifæri á Íslandi.
Antony, sem búsettur er hér á landi, hefur ríflega 18 ára reynslu af útflutningi hjá virtu ítölsku fyrirtæki, auk þess að hafa stofnað eigið fyrirtæki. Hann hefur því byggt upp stórt tengslanet fyrirtækja og samtaka.
Fyrirtækjum með áhuga á Ítalíumarkaði er bent á að hafa samband við Antony, antony@invest.is, og afla sér upplýsinga um ítalska markaðinn og viðskiptatækifæri sem þar eru fyrir hendi.






