Sjávarútvegssýningin í Brussel
29. apríl 2010
Það voru 26 fyrirtæki sem tóku þátt á sameiginlegum bás Útflutningsráðs á sjávarútvegssýningunni í Brussel sem stóð yfir dagana 27.-29. apríl.
Allir sýnendur voru sammála um að sýningin hafi verið góð og að heimsóknir til fyrirtækja hafi verið markvissar.
Opinberar tölur um fjölda sýningargesta liggur ekki fyrir en þó er talið að um töluverða aukningu hafi verið frá því í fyrra þegar um 25.000 manns heimsóttu sýninguna.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn H. Sverrisson, adalsteinn@utflutningsrad.is







