Verkefnið Sjóður fær góðar viðtökur
Kynningarfundur var haldinn þriðjudaginn 20. apríl, í Fossatúni í Borgarfirði á verkefni sem leitast við að nýta nánasta umhverfi sem auðlind og uppsprettu tækifæra í ferðaþjónustu.
Sjóður er handleiðslu- og þróunarverkefni Útflutningsráðs Íslands og Ferðaþjónustu bænda sem býður þér upp á tækifæri til að fá persónulega ráðgjöf um:
- hvernig hægt sé að nýta enn betur þá þjónustu sem þegar er til staðar og
- greina og þróa nýja möguleika í þjónustu við ferðamenn.
Verkefnið verður unnið í samvinnu við ráðgjafa sem hafa sérstaka þekkingu á ferðaþjónustu í dreifbýli og möguleikum til markaðsþróunar. Það er unnið á staðnum, þ.e. fundir og handleiðsla verður unnin heima í héraði.
Sjóður er eingöngu ætlað félögum í Ferðaþjónustu bænda og að þessu sinni eru það félagar á Vesturlandi sem gefst kostur á að taka þátt í verkefninu.
Góð þátttaka var á fundinum og var góður rómur gerður að verkefninu.
Nánari upplýsingar veita Björn Reynisson og Hermann Ottósson hjá Útflutningsráði Íslands sími 511 4000 og Berglind Viktorsdóttir hjá Ferðaþjónustu bænda sími 570 2710.







