Nordic Green II
Þróun grænnar nýsköpunar, endurnýjanlegt fljótandi eldsneyti, hagkvæmur rekstur gagnavera ...
er meðal þess sem íslenskir þátttakendur fjölluðu um á Nordic Green II, ráðstefnu og sýningu sem haldin var í Silicon Valley í Kaliforníu dagana 27. og 28. apríl.
Nordic Green II er haldin til að fylgja eftir mjög árangursríkri ráðstefnu sem haldin var 2008. Í ár er Silicon Valley staðurinn þar sem stjórnendur umhverfistæknifyrirtækja, frá Norðurlöndunum, Eistlandi og Bandaríkjunum, og fyrirtækja sem tengjast þeim geira hefja samstarf fyrir komandi framtíð á sviði umhverfistæknilausna.
Nordic Green II er sérstaklega gott tækifæri fyrir þá sem eru að leita að samstarfsaðilum og/eða fjármagni og þurfa að kynna sína vöru og/eða þjónustu fyrir sínum fagmarkaði.
Sjá upplýsingar um íslensku þátttakendurna






