Frá hugmynd til markaðar (HH2) lokið á Austfjörðum
Verkefninu Frá hugmynd til markaðar(HH2) á Austfjörðum er nýlokið. Verkefnið er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH).
Markmið HH2 verkefnisins er að auka markaðsvitund þátttakenda með kennslu vinnubragða í markaðssetningu og frágangi vöru á markað. Helstu einkenni og söluvörur svæðisins eru greindar og unnið að þróun hugmynda og vara sem verða til við samstarf ferðaþjónustufyrirtækjanna á svæðinu.
Fyrsti vinnufundur hópsins fór fram á Eskifirði í byrjun janúar en þar hitti skoski ráðgjafinn Tom Burnham þátttakendur. Annar vinnufundur fór fram á Egilsstöðum og þriðji var á Hótel Aldan Seyðisfirði nú í vikunni. Þátttakendur kynntu þar vöruhugmyndir fyrir aðilum frá Útflutningsráði, Ferðamálastofu og SAF. Ljóst er að um margar og áhugaverðar hugmyndir er að ræða sem komu úr verkefninu.
Þátttakendur í verkefninu á Austfjörðum voru frá 12 fyrirtækjum en þau eru: Birds.is (Djúpavogur), Ferðaþjónustan Mjóeyri, Gistihúsið Egilsstöðum, Hótel Aldan, Hótel Hérað, Klausturkaffi, Tanni ehf. ferðaþjónusta, Austfjarðaleið, Skálanes, Ferðamálafulltrúi Borgarfjarðar eystri, Ferðamálafulltrúi Fjarðarbyggðar, Ferða- og menningarmálafulltrúi Vopnafjarðar.
Samstarfsaðilar að HH2 verkefninu eru: Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa, Þróunarfélag Austurlands og Markaðsstofa Austurlands.
Nánari upplýsingar um verkefnið veita Björn H. Reynisson bjorn@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson hermann@utflutningsrad.is hjá Útflutningsráði.







