CCP hf. hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2010
Þriðjudaginn 20. apríl, veitti forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrirtækinu CCP hf. Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Það var Hilmar Veigar Pétursson forstjóri sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins.
Útflutningsverðlaun forseta Íslands eru veitt í viðurkenningarskyni fyrir markvert framlag til eflingar útflutningsverslun og gjaldeyrisöflun íslensku þjóðarinnar. Úthlutunarreglur kveða á um að verðlaunin skuli veitt fyrirtækjum eða einstaklingum, íslenskum eða erlendum, fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum eða þjónustu á erlendum markaði. Veiting verðlaunanna tekur mið af verðmætisaukningu útflutnings, hlutdeild útflutnings í heildarsölu, markaðssetningu á nýjum markaði, ásamt fleiru.
Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni: Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands, Ingjaldur Hannibalsson frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Friðrik Pálsson frá Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins, Örnólfur Thorsson frá embætti forseta Íslands og Valur Valsson frá Útflutningsráði Íslands, en Útflutningsráð ber ábyrgð á undirbúningi og kostnaði við verðlaunaveitinguna.
Útflutningsverðlaunin voru fyrst veitt Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna árið 1989. Meðal annarra fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin eru: Lýsi hf., 3X-Stál hf., Bláa lónið hf., Samherji hf., Guðmundur Jónasson hf., Sæplast hf., Össur hf., Flugleiðir, Marel hf. og á síðasta ári hlaut Vaki fiskeldiskerfi verðlaunin.
Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2010
CCP er veitt verðlaunin fyrir að hafa náð einstökum árangri á heimsvísu í þróun og markaðssetningu fjölþátttöku tölvuleikja. Fyrirtækið fer fremst í fylkingu fyrirtækja hér á landi sem saman mynda nýja tegund framleiðsluiðnaðar, sem byggir starfsemi sína á sköpunargleði, lifandi hugsun, háþróaðri tölvutækni og viðskiptalegu innsæi.
CCP hf. var stofnað í júní 1997. Markmiðið fyrirtækisins var að þróa tölvuleik sem spilaður yrði á netinu og yrði einstakur á sínu sviði, leik þar sem allir þátttakendur væru aðilar að sama „leik-heimi“, þannig að mikill fjöldi spilara gæti lifað og hrærst í sama umhverfi – allir væru að spila við alla.
Þessi hugsun var mjög framsækin, því flestir aðrir fjölþátttökuleikir eru þannig úr garði gerðir að þeim er skipt niður í smærri, ótengda leikheima, sem hver og einn er afrit af hinum næsta. Það er jafnan gert vegna þess að tæknin á bak við leikina ræður ekki við að vinna með allt það gríðarlega gagnamagn sem fylgir tugþúsundum spilara í einum og sama heiminum
Fyrsti fjölþátttökuleikur fyrirtækisins kom út í maí 2003 og ber heitið EVE-Online. Frá þeim tíma hefur fyrirtækið stöðugt stækkað og dafnað og er EVE- Online enn aðalframleiðsluvara fyrirtækisins og eru um 350.000 áskrifendur að leiknum.
Starfsstöðvar CCP eru nú í fjórum löndum, hér á landi, í Kína, Bandaríkjunum og Bretlandi. Starfsmenn um síðustu áramót voru 451 og hafði fjölgað um tæplega 100 á árinu. Starfsfólkið kemur frá um 20 þjóðlöndum og samanstendur af kraftblöndu listamanna, vísindamanna, sérfræðinga í hugbúnaðargerð og stjórnenda.
Velta CCP á síðasta ári var rúmlega 55 milljónir dollara eða tæpir 7 milljarðar íslenskra króna og hagnaður fyrirtækisins var rúmar 6 milljónir dollara eða rúmlega 700 milljónir íslenskra króna.
Verðlaunagripurinn
CCP fær í hendur sérhannaðan verðlaunagrip og skjal, auk þess sem verðlaunahafi fær leyfi til að nota merki verðlaunanna á kynningarefni sitt í fimm ár frá afhendingu.
Verðlaunagripurinn í ár er gerður af Vigni Jóhannssyni myndlistarmanni en merki Útflutningsverðlaunanna er hannað af Hilmari Sigurðssyni.
Listaverkið eftir Vigni heitir Ljóshverfing og er unnið úr steypu og gleri. Listamaðurinn lýsir verkinu þannig:
Ljósið kemur upp ljósleiðarann og dreifist í glerforminu til áhorfenda. Ljósið býr til form sem er breytilegt frá hverju sjónarhorni fyrir sig. Ljósleiðnin sjálf er eins frá öllum hliðum en dreifingin ljóssins ójöfn, misjöfn og einstaklingsbundin. Við sjáum ljósið streyma og dreifast, miðlast og skapa nýjan vettvang, tilgang og lífsstíl.
Þannig verður tengingin milli listaverksins og hugmynda fyrirtækisins beintengd.

Ljósm. Ragnar Th Sigurðsson






