Ferðamenn í góðu yfirlæti á Íslandi
Ferðamálaráð kom saman til fundar í hádeginu í dag, 16. apríl 2010, og telur ástæðu til þess að vekja ahtygli á að daglegt líf á Íslandi gengur sinn vanagang þrátt fyrir að eldgos í Eyjafjallajökli á suðurströnd Íslands hafi veruleg áhrif og skapi hættu á tilteknu svæði. Í öðrum landshlutum er mannlíf í föstum skorðum.
Enda þótt gosið í Eyjafjallajökli sé tiltölulega lítið þá hefur gosaska dreifst víða og truflað flugsamgöngur í Evrópu. Það er sameiginlegt viðfangsefni flugmála- og ferðamálayfirvalda í Evrópu að finna leiðir til þess að koma ferðamönnum til áfangastaða af fullkomnu öryggi.
Almannavarnir á Íslandi sjá um að fyllsta öryggis sé gætt innanlands og stöðugar upplýsingar berist til allra sem á þeim þurfa að halda. Euro Control og Volcanic Ash Center ákveða um flugheimildir í Evrópu. Enda þótt gosið yrði langvinnt, sem engin leið er að spá um, er talið að úr gosöskumyndun dragi þegar forsendur fyrir blöndun vatns og eimyrju eru ekki lengur fyrir hendi.
Ferðamálaráð varar við yfirdrifnum fréttum af gosinu en hvetur ferðamenn til þess að fylgjast vel með þróun þess.
Þeir ferðamenn sem eru á Íslandi um þessar mundir eru í góðu yfirlæti og reynt er að greiða götu þeirra sem best má.
Reykjavík 16. apríl 2010.
Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Konráðsdóttir formaður Ferðamálaráðs í síma 693 9363.






