Eldgosið - upplýsingaefni á ensku
Sameiginleg tilkynning á ensku frá Útflutningsráði og Ferðamálastofu vegna gossins undir Eyjafjallajökli er uppfærð daglega eða eins og þörf þykir. Í henni er leitast við að draga fram helstu staðreyndir varðandi gosið, ekki síst með erlent ferðafólk í huga og erlenda viðskiptaaðila.
Með sameiginlegri tilkynningu er leitast við að koma á framfæri samræmdum og yfirveguðum skilaboðum um eðli og framvindu gossins og áhrif þess á ferðalög og daglegt líf hérlendis. Þar er einnig að finna tengingar inn á helstu upplýsingasíður sem fólk þarf á að halda í tilfellum sem þessum, svo sem upplýsingasíður flugfélaganna, Almannavarnir og Veðurstofuna.
Tilkynninguna er hægt að nálgast hér og er reynt að uppfæra hana reglulega. Tilkynningin er einnig aðgengileg á landkynningarvef Ferðamálastofu, visiticeland.com, á vef íslenskra stjórnvalda á iceland.org og á heimasíðum sendiráða Íslands erlendis, og geta íslensk fyrirtæki og einkaaðilar nýtt sér hana til að koma upplýsingum á framfæri.
Nánari upplýsingar hjá Útflutningsráði veitir Inga Hlín Pálsdóttir, inga@icetrade.is eða í s. 511 4000.






