Útskrift í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur:
Stjörnu-Oddi og Belgingur verðlaunuð fyrir bestu markaðsáætlanirnar
Maarit Kaipainen frá fyrirtækinu Star-Oddi og María Edwardsdóttir frá Belgingi voru verðlaunaðar í dag fyrir bestu markaðsáætlanirnar við útskrift í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH) sem Útflutningsráð Íslands stendur að í samvinnu við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Félag kvenna í atvinnurekstri.
Þetta er í 20. árið sem ÚH námskeið er haldið á vegum Útflutningsráðs en um er að ræða þróunarverkefni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa áhuga á að hefja útflutning eða festa í sessi útflutning sem þegar er hafinn. Að þessu sinni tóku fulltrúar átta fyrirtækja þátt í námskeiðinu en þau eru:
Belgingur – María Edwardsdóttir
Knitting Iceland – Ragnheiður Eiríksdóttir
Practical – Marín Magnúsdóttir
Jens – Ingibjörg Snorradóttir
Star-Oddi – Maarit Kaipainen
Varma – Helga Lísa Björnsdóttir
Lava Clinic – Elín María Björnsdóttir
Internetið – Ólafur Helgi Þorkelsson.
Í ávarpi sínu við útskriftina sagði Hermann Ottósson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði, og umsjónarmaður ÚH verkefnisins m.a.:
Mörg af þekktustu útflutningsfyrirtækjum landsins hafa farið í gegnum ÚH verkefnið.
„Sum þeirra tóku fyrst flugið eftir að hafa tileinkað sér þá aðferðafræði og vinnubrögð sem við höfum haft fyrir ykkur í vetur. Ég vonast ekki til, heldur ætlast til þess að sjá fyrirtæki ykkar á þeim lista áður en langt um líður,“ sagði Hermann Ottósson í lok máls síns.
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs og formaður stýrihóps ÚH, greindi frá niðurstöðum um val á bestu markaðsáætlunum. Hann gat þess að í tilviki Star-Odda væri klassískt dæmi um þróaða vöru sem selja á inn á nýjan markað og hjá Belgingi væri um að ræða nýja vöru sem væri alveg séríslenskt fyrirbæri.

Þátttakendur í ÚH 20 ásamt aðstandendum verkefnisins.
Nánar um fyrirtækin:
Belgingur – Fyrirtækið vinnur með veðurspár. Þátttaka fyrirtækisins í ÚH verkefninu er liður í átaki til að vinna markvissara að markaðsmálum og stefnumótun fyrirtækisins. Markaðir eru ekki landabundnir heldur er verið að sníða þjónustuna og markaðsetja til ákveðna markhópa. Þátttakandi er María Edwardsdóttir
Knitting Iceland – Fyrirtækið er sérhæft á sviði ferðaþjónustu og býður upp á prjónaferðir til Íslands. Í ÚH hefur fyrirtækið verið að vinna að þróun markaðssetningar og markaðsátaks á Kanada markað. Þátttakandi er Ragnheiður Eiríksdóttir.
Practical – Fyrirtækið er sérhæft á sviði ferðaþjónustu og viðburðastjórnunar. Í ÚH þátttökunni er verið að skoða markaðsátak á Bandaríkjamarkaði. Þátttakandi er Marín Magnúsdóttir.
Jens – Hefur í vetur verið að vinna að markaðsetningu erlendis á nýrri skartgripalínu Uppsteyt. Markaðir sem valdir voru eru Þýskalandsmarkaður og Bretland.
Þátttakandi í verkefninu er Ingibjörg Snorradóttir
Star-Oddi – Með þátttöku er verið að stíga ákveðið skref í átt að nýjum markaði fyrir vörur fyrirtækisins en þessi markaður er lyfjaþróun og lyfjarannsóknir. Þátttakandi í verkefninu er Maarit Kaipainen
Varma – Fyrirtækið framleiðir ullarvörur og verkefnið í ÚH 20 var að vinna að markaðsátaki fyrir nýja hönnunarlínu sem heitir Blik. Fyrirtækið hyggst færa út kvíarnar til Kanada. Þátttakandi í verkefninu er Helga Lísa Þórðardóttir.
Lava Clinic – Fyrirtækið er sérhæður spítali í Keflavík og markaðssetur og selur íslenska læknisþekkingu erlendis og flytur inn sjúklinga sem þurfa á sérhæfri læknisþjónustu að halda. Þátttakandi er Elín María Björnsdóttir
Internetið – Þátttakan í ÚH 20 er til að skerpa markaðssetningu og sölu á Smart DVD lausnum fyrirtækisins í Bretlandi og Danmörku. Þátttakandi í ÚH fyrir Internetið er Ólafur Helgi Þorkelsson.






