Undirbúningsfundur vegna handleiðslu- og þróunarverkefnis Útflutningsráðs og Ferðaþjónustu bænda
Mánudaginn 18. janúar var haldinn undirbúningsfundur með 14 aðilum frá ferðaþjónustu bænda þar sem rætt var um hvar væri hægt að auka möguleika í þjónustu við ferðamenn. Í framhaldi af því verður ákveðið með hvaða hætti verkefnið verður framkvæmt. Þeir sem tóku þátt í undirbúningsfundinum voru:
Vesturland:
Brandís á Snorrastöðum
Marteinn á Suður-Bár
Eyjólfur í Hlíð
Vestfirðir:
Guðmundur á Hóteli Núpi í Dýrafirði
Jón á Kirkjubóli á Ströndum
Norðurland:
Sigrún á Dæli
Guðbergur í Hléskógum
Kolbrún á Rauðuskriða
Bjarnveig á Ytra-Álandi
Austurland:
Sigríður á Síreksstöðum
Gunnlaugur á Gistihúsinu Egilsstöðum
Suðurland:
Sigurlaug á Brunnhóli
Steinþór á Hótel Dyrhólaey
Björg í Efsta-Dal
Hugmyndin að verkefninu er sú að það verði unnið í hverjum landshluta fyrir sig. Reiknað er með að verkefnin verði alls sex talsins og áætlað er að haldin verði tvö til þrjú á ári. Verkefnunum verður stýrt af Útflutningsráði í náinni samvinnu við Ferðaþjónustu bænda. Þeir sem geta tekið þátt þurfa að vera aðilar að FB.
Nánari upplýsingar veita Hermann Ottósson, hermann@utflutningsrad.is, og Björn H. Reynisson, bjorn@utflutningsrad.is.






