Fræðslufundur um val og stjórnun á umboðs- og dreifingaraðilum á útflutningsmörkuðum – Kynning
18. janúar 2010
Útflutningsráð stóð fyrir fræðslufundi um val og stjórnun umboðsmanna og dreifingaraðila á útflutningsmörkuðum, á Hilton Reykjavík Nordica, föstudaginn 15. janúar síðastliðinn.
Þar fór Mark Dodsworth, framkvæmdastjóri Europartnerships ltd., yfir helstu atriði varðandi umboðs- og dreifingaraðila sem voru:
- Skilgreining og mikilvægi umboðsmanna og dreifingaraðila
- Að finna og velja umboðsmenn og dreifingaraðila
- Mikilvægi löglegra samninga
- Hvatning, eftirlit og mat á frammistöðu umboðsmanna og dreifingaraðila
Yfir 60 manns mættu á fræðslufundinn og var haft á orði að þetta hefði komið á hárréttum tíma.
Erindi Mark Dodsworth er hægt að sækja hér











