Góðar viðtökur íslenskra fyrirtækja á Indlandi
Fulltrúar 11 fyrirtækja tóku þátt í viðskiptasendinefnd á Indlandi í tilefni af opinberri heimsókn forseta þangað. Einnig voru í för fulltrúi Fjárfestingarstofunnar og Film in Iceland.
Viðskiptasendinefndin hóf heimsóknina til Indlands í Mumbai, þriðjudaginn 12. janúar sl., þar sem haldinn var fjölmennur morgunverðarfundur og fyrirtækin voru kynnt. Að fundi loknum áttu fyrirtækin fundi með heimamönnum og var dagskráin þétt skipuð.
Ferðast var til höfuðborgarinnar, Delí, á miðvikudagseftirmiðdegi. Á fimmtudeginum hófst dagskráin með viðskiptafundum, en síðan var haldinn fjölmennur hádegisverðarfundur þar sem íslensku fyrirtækin voru kynnt. Um það bil 100 gestir sóttu þennan fund, og voru íslensku fyrirtækin afar ánægð með að hitta þessa aðila, sem allir voru áhrifamenn í sínum fyrirtækjum. Forseti Íslands ávarpaði fundina og ræddi um íslensk fyrirtæki, hugvit, tækni og þróun, ásamt því að ræða nýtingu Íslendinga á jarðhita og vatnsafli.
Það er samdóma álit íslensku fyrirtækjanna að markaðurinn á Indlandi bjóði upp á margskonar tækifæri fyrir samvinnu og samstarf, og Indverjar mjög jákvæðir fyrir viðskiptum við Ísland. Sendinefndinni lauk á laugardaginn í Bangalore og voru þá heimsótt indversk fyrirtæki, t.d. Hindustan Turbomachinery sem er samstarfsaðili fyrirtækisins Kaldara.
Í ferðinni hafa fjögur íslensk fyrirtæki skrifað undir samstarfssamning við indversk fyrirtæki, þessi fyrirtæki eru LSRetail sem skrifaði undir samstarfssamning við DVS, Marorka sem skrifaði undir samstarfssamning við Unique Maritime Group, Reykjavik Geothermal sem skrifaði undir samstarfssamning við Thermax og Össur sem skrifaði undir samstarfssamning við Velocity Healthcare.
Umsagnir frá nokkrum þátttakendum:
Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku: „Undirritaður var samstarfssamingur á milli Marorku og Unique Maritime Systems í Mumbaí 12. janúar sl. Unique Maritime Systems er fyrirtæki sem hefur aðalstöðvar í Dubai mun setja upp sölu- og þjónustuskrifstofu í Mumbai sem mun meðal annars sjá um sölu og þjónustu fyrir Marorku á indverska markaðnum.“
Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri LSRetail: „Hin opinbera heimsókn forseta Íslands til Indlands skapaði fyrirtækinu sérstakt tækifæri til þess að styrkja viðskiptatengsl fyrirtækisins við okkar indversku dreifingaraðila, Dynamic Vertical Solutions, og þeirra söluaðila. Þetta tækifæri var jafnframt notað til þess að undirrita samning um fræðslusetur fyrir verslun og þjónustu fyrir indverska verslunareigendur þar sem alþjóðleg verslunarreynsla LSRetail kemur að góðum notum í samvinnu við Microsoft.“
Árni Alvar Arason, framkvæmdastjóri Össurar Asia: „Undirritaður var dreifingar-og samstarfssamningur við Velocity Healthcare sem markar upphafið að þjálfun, sölu og tæknilegri aðstoð til kaupendur Össurar vara á Indlandi.“







Ljósm.: Baldur Kristjánsson






