Fundir með sendiherrum vel nýttir
Mikill fjöldi einstaklinga og fyrirtækja nýtti sér tækifærið að ræða við verðandi sendiherra Íslands í Kína, Kristínu Árnadóttur, sem var til viðtals 9.-11. desember sl.
Upphaflega var boðið upp á viðtöl í einn dag en þegar sá dagur var uppbókaður á u.þ.b. fjórum klukkustundum var ákveðið að bjóða upp á fleiri daga sem voru vel nýttir.
Mikill áhugi er á markaðinum í Kína og þess má geta að 35 íslensk fyrirtæki eru skráð í sameiginlegt kynningarverkefni þar sem markmiðið er að leita uppi tækifæri í Kína til að kynna vörur og þjónustu fyrirtækjanna og greiða leið þeirra inn á markaðinn.
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Washington var með viðtalstíma fimmtudaginn 17. desember og nýttu margir tækifærið og komu til fundar við sendiherrann. Athygli vakti að þó nokkrir sýndu löndum eins og Mexíkó og Brasilíu áhuga en þau lönd eru einnig í umdæmi sendiráðins.






