Fyrirtæki hvött til að skrá sig
Skráning í Útflytjendahandbókina, Iceland Trade Directory, hefur staðið yfir undanfarið og eru allir þeir sem stunda viðskipti við útlönd hvattir til að nýta sér hagkvæma og árangursríka leið til kynningar á erlendum mörkuðum.
Unnið er að því að bæta skráningu í vöru- og þjónustuflokka fyrirtækja sem mun skila þeim mun betri árangri. Iceland Trade Directory er upplýsingarit og gagnabanki sem í eru skráð fjölmörg íslensk útflutningsfyrirtæki og hátt í 400 vöruflokkar. Handbókin kemur út árlega en einnig er að finna vefútgáfu hennar á www.icetradedirectory.com. Bókin er gefin út af Heimi ehf. í samstarfi við Útflutningsráð Íslands.
Útflytjendahandbókinni er dreift á vegum Útflutningsráðs Íslands, Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins, Viðskiptaráðs Íslands og Félags íslenskra stórkaupmanna, bæði hérlendis og erlendis, t.d. á sýningum, til ræðismanna og sendiráða, útflutnings- og verslunarráða, í viðskiptaheimsóknum og til fjölda alþjóðlegra fyrirtækja.
Handbókina má nálgast á skrifstofu Útflutningsráðs í Borgartúni 35, Reykjavík, sími 511 4000, eða með því að senda tölvupóst á utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Bókin er einnig fáanleg hjá Útgáfufélaginu Heimi í Borgartúni 23, sími 512 7575, netfang: icelandexport@icelandexport.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig í bókina og vefútgáfuna.






