Fjölgun ferðamanna frá Belgíu og Hollandi
Þrettán íslensk ferðaþjónustufyrirtæki héldu vinnufundi í Amsterdam og Brussel í síðustu viku. Fulltrúar fyrirtækjanna voru ánægðir með viðtökurnar og töldu gott sóknarfæri á þessu svæði. Má þar nefna að samningar hafa verið gerðir við nýja söluaðila sem þegar í janúar hefja sölu ferða til Íslands.
Kees van der Most, framkvæmdastjóri Tourism Research í Amsterdam flutti erindi á fundi með fyrirtækjunum og kom fram í máli hans að búist er við samdrætti á ferðum Hollendinga til flestra áfangastaða nema Norðurlandanna. Þar hefur þeim fjölgað um 16% á árabilinu 2006 til 2009 sem er í samræmi við að náttúruskoðun er að verða eitt alvinsælasta viðfangsefni í ferðalögum Hollendinga.
Brussel er markaður þar sem opnast fyrir mikla möguleika með beinu flugi Icelandair þangað næsta sumar og telja fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækjanna að með þessum fundum hafi náðst góðar tengingar inn á þennan markað.








