Mikill áhugi á hjólreiðaferðamennsku á Íslandi
„Aðilar í ferðaþjónustu eru mjög áhugasamir um hjólreiðaferðir um Ísland og telja að mikil tækifæri séu hér á þessu sviði ferðamennsku,“ segir Björn H. Reynisson hjá Útflutningsráði.
Málin voru reifuð á ráðstefnu sem Útflutningsráð og Ferðamálastofa gengust fyrir á dögunum um hjólreiðaferðir og möguleika í ferðaþjónustu hér á landi. Útflutningsráð mun starfa áfram að verkefnum til uppbyggingar fyrir þennan ákveðna markhóp og verður í framhaldinu boðað til stefnumótunarfundar sem auglýstur verður síðar.
Breski ráðgjafinn Tom Burnham kynnti möguleika í ferðaþjónustu og uppbyggingu hjólaleiða og sagði frá aðkomu sinni að hjólaferðamennsku á Bretlandi. Tom hefur m.a. tekið þátt í vinnu við verkefnið Coast to Coast á Norður-Englandi, markaðssetningu hjólreiðaferða og komið að bóka- og vefútgáfu um þennan þátt ferðaþjónustunnar. Á ráðstefnunni var jafnframt boðið upp á kynningu á Fjallahjólaklúbbi Íslands og Landssamtökum hjólreiðamanna.
Kynning Tom Burnham er hér
Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson, bjorn@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson, hermann@utflutningsrad.is, sími 511 4000.







