Frosin grásleppa frá Íslandi
Útflutningsfyrirtækið Triton ehf. tók þátt í vörusýningunni China Fisheries & Seafood Expo 2009, sem haldin var í Qingdao í Kína dagana 3.-5. nóvember sl.
Með þátttöku sinni í þessari stærstu sjávarvörusýningu í Asíu fylgir Triton eftir söluátaki sínu á grásleppu til Kína en fyrirtækið opnaði fyrir þessi viðskipti í ár með útflutningi á rúmum 70 tonnum af grásleppu til samstarfsaðila sinna þar í landi.
Áætlað er að um 3 þúsund tonn af grásleppu falli til á Íslandi ár hvert en eins og kunnugt er, hafa hingað til einungis hrogn þessa annars frábæra matarfisks verið nýtt; sjálfum fiskinum er hent.
Að sýningunni lokinni munu auk þess fara fram kynnningar á þremur völdum hótelum í Shanghai. Þar verður boðið upp á ýmsa rétti úr íslenskri grásleppu og fleiri íslenskum sjávarafurðum, þ.á.m. niðursoðinni þorsklifur frá Triton.
Grásleppukarlar á Íslandi binda vonir við að hægt verði að byggja upp traustan markað fyrir frysta grásleppu í Kína og hugsanlega fleiri löndum í Asíu. Um miðjan nóvember, þegar sendinefndin kemur heim frá Kína, fæst vonandi upplýst, hvers vænta má í þessum málum.






