Fjölsóttur fundur um Japan
Rúmlega 40 gestir voru á morgunfundi Útflutningsráðs og Íslenska viðskiptaráðsins í Japan þar sem rætt var um tækifæri í viðskiptum.
Í upphafi ávarpaði Stefán Lárus Stefánsson sendiherra í Tókýó fundinn og síðan fluttu þeir erindi Árni Páll Einarsson formaður Íslenska viðskiptaráðsins í Japan og framkvæmdastjóri Atlantis Seafood (glærur) og Katsuhiro Natsume Chargé d'Affaires frá sendiráði Japan á Íslandi. Að loknum erindunum voru fyrirspurnir. Var ljóst að fundargestir voru bæði afar áhugasamir um aukin viðskipti við Japan og eins áhyggjufullir vegna frétta af fyrirhugaðri sölu sendiherrabústaðar sem jafnframt hýsir sendiráðið.
Mikil aukning hefur verið í komum japanskra ferðamanna til landsins og er von á að það aukist enn frekar í kjölfar vel heppnaðrar sendinefndar ferðþjónustufyrirtækja í mars sl. og svo með veglegri þátttöku í JATA ferðakaupstefnunni í Tókýó 18. til 20. september nk.






