Sendiherra Íslands í Brussel í heimsókn
Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Brussel, verður til viðtals miðvikudaginn 23. maí.
Fundirnir eru ætlaðir þeim sem vilja ræða viðskiptamöguleika eða menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmi sendiráðsins þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Auk Belgíu eru umdæmislönd sendiráðsins Holland, Lúxemborg, San Marínó og Sviss.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Íslandsstofu, Borgartúni 35.
Áhugasamir eru hvattir til að bóka fund sem fyrst í síma 511 4000 eða með tölvupósti,
islandsstofa @islandsstofa.is
Nánari upplýsingar veita Andri Marteinsson, andri@islandsstofa.is
og Hermann Ottósson, hermann@ islandsstofa.is
Back
Útflutningsskrefin
-
Markaðsupplýsingar
Kortlagning markaða, gagnabankar, gátlistar, upplýsingar um tolla, regluverk og tæknileg atriði
-
Undirbúningur
Verkefni og námskeið fyrir fyrirtæki og starfsgreinar, tengslamyndun og upplýsingar um handleiðslu
-
Aðstoð á markaði
Þjónustu- og ráðgjafanet á mörkuðum, val á samstarfaðilum, sýningar og sendinefndir